Siglunes.
411-5340
siglunes@reykjavik.is
Höldum til hafs!
Siglunes er ævintýramiðstöð við sjóinn þar sem hressum og kjörkuðum krökkum gefst kostur á að finna kröftum sínum og ævintýraþrá farveg. Á sumrin er boðið uppá siglinganámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 9–12 ára og siglingaklúbb fyrir 10–16 ára unglinga sem hafa áhuga og reynslu af siglingum og öðru bátasporti.
Afar rík áhersla er lögð á þjálfun starfsfólks. Starfsfólk hefur mikla þekkingu og reynslu á viðfangsefni námskeiðanna og er þjálfað í skyndihjálp og notkun báta og búnaðar sem notaður er á námskeiðunum. Starfsfólk Sigluness leggur áherslu á að öllum þátttakendum í starfinu líði vel og að dagskrá námskeiðanna sé fjölbreytt, þroskandi og skemmtileg.
Gjaldskrá
Siglingar, róður, ævintýri: 5 dagar: 12.000,- kr.
* Siglingar, róður, ævintýri: 4 dagar: 9.600,- kr.
Vatnasportklúbbur Siglunes: 5 dagar: 8.600,- kr.
* Vatnasportklúbbur Siglunes: 4 dagar: 6.900,- kr.
Skráning hefst þriðjudaginn
28.apríl 2026 kl.12:00
Siglingar, róður, ævintýri
Athugaðu að skráningarsíðan mun ekki sýna námskeiðið fyrr en kl. 12:00, þriðjudaginn 28.apríl þegar skráning hefst. Þegar skráningarsíðan er orðin virk er hægt að velja námskeiðsvikuna.
Skráning hér!
Vatnasportsklúbburinn
Athugaðu að skráningarsíðan mun ekki sýna námskeiðið fyrr en kl. 12:00, þriðjudaginn 28.apríl þegar skráning hefst. Þegar skráningarsíðan er orðin virk er hægt að velja námskeiðsvikuna.


