05.01.2010
Nýárssund 2010
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í þjónustuhús Ylstrandar á Nýársdag til að takast á við ískaldan sjó. Fólk ýmist synti eða brá sér í ljúft sjóbað. Hitastig sjávar á Nýársdag var rétt um -1,7 °c sem kom ekki í veg fyrir mikla aðsókn en fjöldi gesta var rétt í kringum 300. Aðsóknin er orðin svo mikil að opnunartími Ylstrandar á Nýársdag þarf að koma til endurskoðunar svo að fleirri geti notið þess.