21.12.2009
Kæru sjósund og sjóbaðgestir Nauthólsvíkur
Reykjavík 19. desember 2009
Kæru sjósund og sjóbaðgestir Nauthólsvíkur
Um nokkurt skeið hefur verið unnin undirbúningsvinna að stofnun nýs félags til hagsbóta fyrir sjósund og sjóbaðgesti Nauthólsvíkur.
Kveikjan að þessu nýja félagi er að aukning gesta hefur margfaldast undanfarin misseri og nú er svo komið að gott væri að sameinast undir einum fána okkur öllum til hagsbóta! Þegar horft er til framtíðar þá er gott að svona félagsskapur eins og hefur myndast í Nauthólsvík, fái andlit og sé lögaðili gagnvart viðsemjendum eins og Reykjavíkurborg og fleirum.
Nú líður senn að því að aðstaðan okkar í Nauthólsvík fari að springa utan af okkur, slíkar eru vinsældir þessarar jaðaríþróttar sem sjósundið og sjóböð eru. Þá þarf að snúa bökum saman og koma fram undir einu nafni þegar samið er um bætta aðstöðu. Markmið hins nýja félags munu meðal annars vera að bæta aðstöðu okkar og má þar nefna það þarf að stækka aðstöðu fyrir heita potta, gaman væri að fá sauna bað í vannýttan part af þjónustumiðstöðinni og bætta búningaaðstöðu svo eitthvað sé nefnt.
Öryggismál munu vera ofarlega á baugi hins nýja félags, svo og ýmsar leiðbeiningar og ráðleggingar!
Skipuð verður stjórn í þessu nýja félagi og verður þar valinn maður í hverju rúmi og allt fólk sem hefur haft mikla ástríðu fyrir því að sem flestir fái að njóta sín í sjónum. Tveir félagar hafa leitt vinnuna að stofnun þessa félagsskapar og eru það þeir Benedikt Hjartarson og Árni Þór Árnason. Benedikt og Árni hafa síðan unnið náið með starfsliði Nauhólsvíkur og ÍTR, þeim Óttarri, Árna og Ísleifi, en þeir eiga allann heiður skilið fyrir það ötulla starf sem þeir hafa innt af hendi fyrir okkur sjósund og sjóbaðfólk.
Benedikt Hjartarson hefur verið fremstur meðal jafningja, þegar kemur að því að kynna sjósund út á við og er þar skemmst að minnast Ermarsundsafreka hans, sumarið 2008. Hann hefur boðið fram krafta sína til að leiða þetta nýja félag sem formaður fyrst um sinn.
Árni Þór Árnason sundfélagi Benedikts til nokkurra ára hefur leitt vinnuhóp sem að þessu hefur staðið og kemur hann til með að bjóða sig fram til varaformanns.
Stofnfundur félagssins „Sjósund og sjóbaðfélag Reykjavíkur“ verður haldinn á veitingastaðnum Rúbín, (við hlið Keiluhallarinnar). Þar verður boðið upp á léttar veitingar í boði velunnara. Mæting á stofnfundinn verður kl 13:30, 1. Janúar 2010, eftir Nýárssundið okkar víðfræga!
Fundarstjóri verður Júlíus Vífill, formaður Skipulagsráðs Reykjavíkur, aðrir gestir verða Kjartan Magnússon formaður ÍTR, Ómar Einarsson forstjóri ÍTR og aðrir góðir gestir.
Þeir sem ekki geta mætt á stofnfundinn geta skráð sig sem stofnfélaga á síðunni www.sjosund.is (athugið að vinna á síðunni stendur yfir og kemst á netið fljótlega), en þar verður búið að setja upp skráningarform fyrir stofnfélaga.
Gaman verður að sjá sem flesta eftir Nýárssundið.
Ef fólk vill heyra meira um stofnfundinn þá getur það hringt í eftirfarandi aðila
Benedikt Hjartarson, gsm 868-6102
Árni Þór Árnason, gsm 893-8325
Ylströndin í síma 511-6630 (Árni, Óttarr eða Ísleifur)