Fréttir og tlkynningar
Á sumrin er starfræktur siglingaklúbbur í Siglunesi fyrir unglinga á aldrinum 13 - 16 ára. Góð þátttaka var sumarið 2009 og var lokadagurinn myndaður og tekin saman í glæsilegt myndband sem við höfum birt á You tube. Endilega skoðið tengilinn http://www.youtube.com/watch?v=H3RTu7xjdIo hlökkum til sumarsins 2010 með meira klúbbafjöri.
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í þjónustuhús Ylstrandar á Nýársdag til að takast á við ískaldan sjó. Fólk ýmist synti eða brá sér í ljúft sjóbað. Hitastig sjávar á Nýársdag var rétt um -1,7 °c sem kom ekki í veg fyrir mikla aðsókn en fjöldi gesta var rétt í kringum 300. Aðsóknin er orðin svo mikil að opnunartími Ylstrandar á Nýársdag þarf að koma til endurskoðunar svo að fleirri geti notið þess.
Starfsfólk Siglunes og Ylstrandar vill þakka öllum sem lögðu leið sína í Nauthólsvík á árinu 2009. Þar höfum við boðið uppá siglinganámskeið, siglingaklúbba, skemmtisiglingar, bátaleigu, sjóböð og ýmsa útivista fyrir alla. Vonumst við til að sjá sem flesta á árinu 2010, við munum gerar okkar allra besta við að veita góða þjónustu. Með hlýnandi veðurfari í heiminum gerir starfsfólk Nauthólsvíkur ráð fyrir mörgum góðum sólardögum á komandi sumri.
Kveðja,
starfsfólk Nauthólsvíkur.
05.01.2010 Gerður Kristný og jólaljóðin
30.12.2009 Sjávarhiti undir frostmarki
28.12.2009 Nýársbað
28.12.2009 Opnunartími milli jóla og nýárs
21.12.2009 Kæru sjósund og sjóbaðgestir Nauthólsvíkur
Skoða eldri fréttir